Enn er ég staddur í dásamlegu Vínarborg. Hér bjó ég í allt fyrravor og upplifði það sem heimamenn kölluðu kaldasta vor í manna minnum. Fyrir mig var þetta nú bara notalegt loftslag og töluvert hlýrra, þurrara og jafnara en ég er vanur. Það var gott að búa í 3. hverfi í Vínarborg og ég var orðinn hagvanur, fór til dæmis töluvert oftar í klippingu en ég er vanur á Fróni. Það var nefnilega svo fyrirhafnarlítið, og ódýrt!

Ég kíkti svo aftur við í Vín í desember, kíkti á jólamarkaði, brá mér auðvitað í klippingu, og fundaði með heimamönnum um rannsóknir á notkun hermilíkana í kennslu í verkefnastjórnun.
Og nú er maí nýhafinn, og enn er ég staddur í Vínarborg á stuttri ráðstefnu. Umfjöllunarefnið þar er hvorki meira né minna en framtíð háskólakennslu, í ljósi þess að gerfigreindin hefur haldið innreið sína og virðist vera að kollvarpa viðteknum venjum og starfsháttum í kennslu, sem og öðrum greinum atvinnulífsins.
Vinalegri og öruggari borg en Vín er vandfundin og mér líður svolítið eins og ég sé að koma heim. Svo langt gengur það að þeir á Friseur Ensar þekktu mig þegar ég kom þar við í dag. Þeir tóku á móti mér með kankvíslegu brosi og ég settist beint í stólinn; það var lítið að gera á fimmtudagsmorgni. Ég hef reyndar tekið eftir því að í Vínarborg eru ansi margar rakarastofur. Hvernig skyldi standa á því? Varla grær hár hraðar hér en heima? Ætli menn fari ekki bara oftar í klippingu?

Tungumálið er ekki vandamál þegar ég kem á Friseur Ensar. Þeir tala varla nokkra ensku, en það skiptir engu máli. Nauðsynleg tjáskipti eiga sér stað með handapati og hingað til hefur það ekki leitt til neinna stórslysa og ég hef allavega engar kvartanir fengið heima þegar ég kem frá þeim, nýklipptur og fínn. Það er enginn skortur á fagmennsku hjá vinum mínum á Friseur Ensar. Þeir ganga hreint til verks og verðið á þjónustunni er sanngjarnt svo ekki sé meira sagt. Í dag var ég spurður hvort ég vildi klippingu. Ég jánkaði því. Þá var spurt hvort ég vildi “full service.” Ég hef lært hvað það þýðir, þá eru óæskileg hár úr eyrum og nefi fjarlægð á skjótan, skilvirkan og sársaukalítinn hátt með vaxi. Ég hélt nú það og klipparinn kinkaði kolli. Svo gekk hann hreint til verks og án frekari orðaskipta lauk hann verkinu fumlaust og örugglega. Klipping kostar 15 evrur en ef maður ætlar að fá vaxmeðferð kostar það auðvitað meira. Fyrir “full service” þar maður að punga út samtals 20 evrum.
Það svarar nú líklega ekki kostnaði að gera sér sérstaka ferð til Vínarborgar til að fara í klippingu. En svo mikið er víst að þegar leið mín liggur til þessarar dásamlegu borgar, heimsæki ég vini mína á Friseur Ensar í þriðja hverfi og ég get mælt þeim við hvern sem er. Vanir menn – vönduð vinna. Það verður ekki alveg á næstunni að gerfigreindin steli lifibrauðinu af þessum snillingum.

0 comments on “Ætli hár vaxi hraðar í Vínarborg?”