MPM námið, C vottun og ChPP – ný áhersla í verkefnastjórnunarnámi

MPM námið hefur verið kennt á Íslandi síðan árið 2005. Frá upphafi hefur innihald þess verið í stöðugri endurnýjun til að endurspegla þróun fagsins og breyttar kröfur samfélagsins. Á þessum tveimur áratugum hefur orðið veruleg umbreyting og verkefnastjórnun er lykilþáttur í starfsemi fjölmargra fyrirtækja og stofnana.

Þessi þróun er ekki séríslensk. Hugtakið verkefnavæðing (e. projectification) er notað til að lýsa því hvernig heilu samfélögin verða sífellt verkefnadrifnari. Stefnumörkun, umbreytingar, nýsköpun, stafrænar lausnir, margvisleg verðmætasköpun og innra starf birtast í auknum mæli sem verkefni. Hæfni til að leiða þau með ábyrgum og faglegum hætti verður sífellt mikilvægari.

Á Íslandi er framundan gríðarleg uppbygging innviða. Umfangsmiklar fjárfestingar á næstu áratugum munu hlutgerast sem stór verkefni og flóknir verkefnastofnar sem kalla á skýra stefnu, faglega forystu og trausta stjórnun. Hér skiptir öllu að réttar ákvarðanir séu teknar, að fjármunum sé skynsamlega varið, að ábyrgð og gagnsæi séu í forgrunni og vel sé staðið að allri áætlanagerð og eftirfylgni. Fagleg verkefnastjórnun er burðarás í því að tryggja árangur.

Í umfangsmikilli uppstokkun MPM námsins við HR árið 2024 var ákveðið að leggja stórauka áherslu á hæfni og færni í stjórnun verkefna. Hefðbundið nám leggur grunn að fræðilegum skilningi, en fagmennska í verkefnastjórnun byggir ekki síður á traustum reynslugrunni í að takast á við flókin verkefni í óvissu umhverfi. Hér skiptir miklu að búa yfir sjálfsvitund og siðferðislegri dómgreind, og getu til að horfa tilbaka og læra af fenginni reynslu.

Í nýju fyrirkomulagi MPM námsins er unnið markvisst með reynslugrunn nemenda. Þeir eru látnir spegla eigin reynslu með kerfisbundnum hætti, greina styrkleika og áskoranir og þróa með sér faglega sjálfsmynd sem verkefnastjórar. Jafnframt er lögð áhersla á gagnkvæman lærdóm þar sem nemendur styðja hver annan og læra að veita og þiggja uppbyggilega endurgjöf. Þannig verður námið ekki aðeins miðlun þekkingar heldur vettvangur persónulegs og faglegs þroska. 

Til að árétta þessa nýju áherslu var áralangt samstarf við Verkefnastjórnunarfélagið eflt enn frekar, kröfur til umsækjenda um reynslu í stjórnun verkefna voru heldur auknar og haft til viðmiðunar að allir nemendur ljúki hinni alþjóðlegu IPMA C vottun á útskriftarári sínu úr MPM náminu. Þessu til viðbótar var stuðst við viðmið frá Bresku verkefnastjórnunarsamtökunum (APM), sem hafa fengið samþykkt fyrsta og eina lögverndaða starfsheitið innan verkefnastjórnunar, Chartered Project Professional (ChPP). ChPP er virtasta viðurkenning sem verkefnastjóri getur hlotið hjá APM og staðfestir mikla tæknilega þekkingu, víðtæka reynslu af flóknum verkefnum og skýra skuldbindingu við siðferðileg viðmið og stöðuga starfsþróun.

ChPP er ætlað fagfólki með ólíkan bakgrunn og úr ólíkum starfsgreinum. Umsækjendur þurfa að sýna fram á reynslu af stjórnun flókinna verkefna, verkefnastofna eða verkefnaskráa, djúpan skilning á fræðilegum og hagnýtum þáttum verkefnastjórnunar, forystuhæfni, stefnumótandi innsæi og fagleg samskipti. Jafnframt er lögð rík áhersla á siðferði og ábyrgð í starfi.

Við endurskilgreiningu MPM námsins voru þessi viðmið höfð til hliðsjónar og þeir sem ljúka MPM námi hafa þannig einnig uppfyllt að hluta þær kröfur sem gerðar eru til að geta kallað sig ChPP. Með þessu viljum við tryggja að þetta alþjóðlega meistaranám í verkefnastjórnun standist ströngustu alþjóðlegar kröfur um hæfni, fagmennsku og siðferðilega ábyrgð. MPM námið er því enn sterkari vettvangur til að undirbúa þátttakendur til að takast á hendur þá miklu ábyrgð sem felst í því að leiða stór og flókin verkefni í þágu samfélagsins.

0 comments on “MPM námið, C vottun og ChPP – ný áhersla í verkefnastjórnunarnámi

Leave a comment