Gagnagrunnur er aðeins byrjunin

Stórar opinberar fjárfestingar eru gjarnan umdeildar. Stjórnmálamenn hafa ólíkar áherslur, ríkisstjórnir koma og fara og verkefni sem ein ríkisstjórn leggur áherslu á geta verið neðar á forgangslista þeirrar næstu. Ólík forgangsröðun er eðlilegur hluti lýðræðisins. En verra er að eyða orku í að karpa um staðreyndir, til dæmis varðandi kostnað og tíma. Þar ættum við að geta byggt umræðuna á traustum upplýsingum.

Í Noregi hefur verið byggt upp kerfi sem stuðlar að þessu. Þar hefur rannsóknaráætlunin Concept við NTNU háskólann í Þrándheimi gegnt lykilhlutverki í þróun opinberrar verkefnastjórnsýslu í aldarfjórðung. Þetta hef ég svosem vitað lengi, en á þessu ári hef ég fengið tækifæri til að kynna mér norsku verkefnastjórnsýsluna frá fyrstu hendi – í heimsókn til norska fjármálaráðuneytisins í janúar og svo á frábærri ráðstefnu í Osló í september.

Frá gögnum til þekkingar

Einn af hornsteinum norska kerfisins er gagnagrunnurinn Trailbase. Þar er gögnum um stór opinber verkefni safnað með skipulegum hætti. Gögnin ná meðal annars til undirbúnings, kostnaðaráætlana, óháðra úttekta og niðurstaðna verkefna. Concept rannsóknaáætlunin heldur utan um gagnagrunninn en aðrar háskólastofnanir hafa aðgang að honum til að sinna rannsóknastarfi. Með greiningu gagnanna má bera saman verkefni, skoða þróun yfir tíma og bera saman árangur og vinnubrögð. Þannig verða gögn að upplýsingum sem síðan verða grundvöllur nýrrar þekkingar.

Gott dæmi um þetta eru rannsóknir á þróun kostnaðaráætlana milli ákvörðunarstiga. Rannsóknir Concept hafa sýnt að kostnaðaráætlanir hækka að jafnaði um 40% milli fyrstu og annarrar gæðaúttektar, þær nefnast QA1 og QA2 í norska kerfinu. Þessi niðurstaða hefur orðið tilefni frekari rannsókna á því hvað gerist á þessu tímabili. Þetta var meðal annars til umræðu á Concept-ráðstefnunni nú í haust. Hér má glögglega sjá hvernig kerfisbundin gagnasöfnun getur leitt til nýrrar þekkingar sem aftur nýtist til umbóta.

Nálægt stjórnsýslunni, en samt sjálfstæð

Þegar við höfum áttað okkur á mikilvægi gagnagrunnsins vaknar næsta spurning. Hvernig tryggjum við að gögnunum sé safnað, að þau varðveitist og að úr þeim sé jafnt og þétt unnin þekking sem nýtist samfélaginu?

Norðmenn hafa farið þá leið að fela NTNU þetta hlutverk. Concept rannsóknaáætlunin er fjármögnuð af norska fjármálaráðuneytinu. Gro Volden Holst er í forsvari fyrir Concept og á fundi okkar í Osló í janúar lýsti hún hlutverki rannsóknaráætlunarinnar. Hún lagði áherslu á að Concept þyrfti að vera í nánum tengslum við stjórnsýsluna og sinna rannsóknum sem nýttust henni, en jafnframt halda nægilegri fjarlægð til að geta spurt gagnrýninna spurninga.

Þetta jafnvægi skiptir miklu máli. Ráðuneytin bera ábyrgð á verkefnunum og stjórnvöld taka ákvarðanir um fjárfestingar. Óháðir rýnar leggja mat á verkefni á mikilvægum ákvörðunarstigum. Concept hefur hins vegar það hlutverk að safna gögnum og greina þau, rannsaka árangur, miðla þekkingu og stuðla að umbótum.

Staðsetning Concept innan virts háskóla, fagleg vinnubrögð og gagnsæi hafa stuðlað að trúverðugleika norsku verkefnastjórnsýslunnar. Þetta fyrirkomulag hefur einnig skapað samfellu í þekkingaruppbyggingu, enda þótt ríkisstjórnir komi og fari og skipulag stjórnsýslunnar breytist.

Þekkingunni þarf að miðla

Rannsóknir skila þó litlum árangri ef niðurstöðurnar ná ekki til þeirra sem geta nýtt þær. Norðmenn leggja því mikla áherslu á miðlun þekkingar og faglegt samtal. Á tveggja ára fresti stendur Concept fyrir alþjóðlegri ráðstefnu þar sem norskum rannsóknum er miðlað og erlendir sérfræðingar kynna reynslu og þekkingu frá öðrum löndum.

Þetta hefur skapað öflugan alþjóðlegan vettvang. Norðmenn miðla eigin reynslu en fá jafnframt nýjar hugmyndir og nýja þekkingu. Concept hefur öðlast alþjóðlega viðurkenningu og norska kerfið er fyrirmynd um allan heim.

Íslenskt tækifæri

Með fyrirhuguðum breytingum á stjórnsýslu opinberra fjárfestinga á Íslandi er gert ráð fyrir að byggja upp gagnagrunn um verkefni. Það er mikilvægt framfaraskref, ekki síst ef tryggt verður að gögnin nýtist til rannsókna og umbóta.

Reynsla Norðmanna er skýr vísbending um það hvernig best er að standa að þessu. Að fela sjálfstæðu rannsóknasetri við háskóla að annast faglega umsýslu, þróun og skipulagða úrvinnslu gagnagrunnsins samkvæmt samningi við fjármálaráðuneytið. Slíkt fyrirkomulag styrkir traust og gagnsæi, stuðlar að samfellu og skapar varanlegt rannsóknarumhverfi þar sem þekking er unnin úr gögnunum og henni miðlað.

Við Verkfræðideild HR hefur um nokkurra ára skeið verið unnið að rannsóknum á verkefnastjórnsýslu. Í samstarfi við Verkfræðingafélagið hafa verið haldnar nokkrar ráðstefnur þar sem meginþemað hefur einmitt verið verkefnastjórnsýsla. Tækifærið nú felst ekki aðeins í því að koma upp gagnagrunni, heldur að skapa varanlegan vettvang þar sem gögn verða að upplýsingum, upplýsingar verða að þekkingu og þekkingin leiðir til umbóta.

Pistillinn er sá fjórði í röð pistla um verkefnastjórnsýslu og þær breytingar sem boðaðar eru með frumvarpi til laga um fjárfestingar ríkisins.

Teikningin er teiknuð af gerfigreind skv. fyrirmælum bloggritara.

0 comments on “Gagnagrunnur er aðeins byrjunin”

Leave a Reply