Ég veit fá betri dæmi um viðleitni til að þróa stóra, sameiginlega framtíðarsýn marga aðila með ólíka hagsmuni, en Samgöngusáttmálann. Það er ágætt að rifja upp helsta ávinning sem samningsaðilar vilja ná með Samgöngusáttmálanum.

Þessi sáttmáli var fyrst undirritaður í september 2019, en svo var fjármálahluti hans tekinn til mikillar rýni og endurskoðunar árið 2023. Samningsaðilar endurnýjuðu heitin og staðfestu svo uppfærðan sáttmála með undirritun í ágúst 2024 (sjá umfjöllun á heimasíðu stjórnarráðsins). Endurnýjunin gekk einkum út frá að endurmeta kostnaðaráætlanir fyrir öll verkefni sáttmálans. Eftir því sem ég best veit var þar notast við bestu aðferðir við mat á stofnkostnaði verklegra framkvæmda.
Það má kalla það hálfgert kraftaverk að ná ríkinu ásamt sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu saman um þessa miklu þjóðarhagsmuni. Þetta var fólk úr öllum stjórnmálaflokkum og sjálfum fannst mér það geggjaður vitnisburður um að þrátt fyrir allt pólitískt þref – daglegt karp um lítil og stór mál – þá eru nú allir í stjórnmálum með það sama grunnmarkmið að gera samfélagið betra.
Þessi sáttmáli – með sinni sterku framtíðarsýn – er því ótrúlega verðmætur. Það var stórmál að koma honum saman og mér finnst þyngra en tárum taki að hlusta á tal frambjóðenda í aðdraganda sveitastjórnarkosninga um að það þurfi að kasta þessum sáttmála fyrir róða, og loforð þeirra um einhverjar töfralausnir sem geti komið í staðinn og kosti miklu minna og skili miklu betri árangri en Borgarlína, eitt helsta viðfangsefni Samgöngusáttmálans.
Ég hef enga ástæðu til annars en að treysta því góða fólki sem vinnur nú hörðum höndum að því að raungera Samgöngusáttmálann. Þetta er í höndum sérstaks fyrirtækis ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu sem ber heitið Betri samgöngur. Skipulagsvaldið er í höndum sveitarfélaganna og öll verkefni sáttmálans þarf því að þróa og útfæra í sátt við viðkomandi sveitarfélög. Ég er svo sannarlega enginn sérfræðingur í samgöngumálum, en ég veit að færustu sérfræðingar vinna að útfærslu Samgöngusáttmálans, bæði íslenskir og alþjóðlegir sérfræðingar. Ég ber fullt traust til þessa fólks.
Eitt af því sem kom út úr endurnýjun sáttmálans 2024 var stóraukin áhersla á að miðla upplýsingum um þau verkefni sem falla undir þennan sáttmála. Ég vil benda fólki á að skoða mjög góða heimasíðu sem snýst um þetta (www.verksja.is) – ef það vill fá yfirlit yfir sáttmálinn í heild, og kynna sér stöðu einstakra verkefna.

0 comments on “Um hvað snýst Samgöngusáttmálinn og af hverju er hann svo mikilvægur?”