10. júní 2026 er góður dagur. Við Magga vorum að ljúka síðasta formlega læknaviðtalinu hjá Aleris í Uppsala, þar hefur hún verið í meðferð síðan í nóvember á síðasta ári vegna sogæðabjúgs í hægri handlegg.

Fyrir ári síðan var útlitið ekki gott. Undanfarin ár hafði Magga að jafnaði þurft að fara í lyfjagjöf í æð á þriggja mánaða fresti vegna sýkinga í hendinni. Í fyrravor var hún að jafna sig eftir sína alvarlegustu sýkingu fram að því og þótt hún bæri sig vel voru áhyggjurnar miklar. Hún hafði þá verið utan vinnumarkaðar frá vorinu 2024 og rætt var af alvöru um varanlega örorku. Rétt er að taka fram að engin meðferð við þessu er í boði á Íslandi. Eina úrræði heilbrigðiskerfisins hefur verið að meðhöndla sýkingarnar þegar þær koma upp.
Ég átti spjall við kollega minn við Háskólann í Reykjavík, Halldór Jónsson bæklunarskurðlækni og emeritus prófessor, sem er hluti af öflugu teymi vísindamanna á sviði heilbrigðisverkfræði. Halldór fór þegar að vinna í málinu. Hann hafði samband við kollega á Íslandi og í Svíþjóð og í ljós kom að einkasjúkrahúsið Aleris í Uppsala hefur sérhæft sig í meðferð við sogæðabjúg.
Læknirinn Håkan Brorson hefur þróað þessa meðferð og skrifað um hana lærðar vísindagreinar. Í teyminu með honum starfar læknirinn Anders Liss og sjúkraþjálfarinn Pia Gunnarsson. Um árabil hefur meðferðin verið notuð með góðum árangri og reynslan sýnir að eftir meðferðina hefur hætta á sýkingum minnkað að jafnaði um 84%.

Við Magga fórum í fyrsta viðtal á Aleris í lok ágúst 2025. Eftir skoðun lá fyrir að meðferðin hentaði henni vel og líkur á árangri væru mjög góðar. Halldór annaðist samskipti við Sjúkratryggingar og með því að vísa til fordæma og sýna fram á að Magga væri óvinnufær samþykktu Sjúkratryggingar að greiða fyrir meðferðina. Aðgerðin fór fram í nóvember. Hún fól í sér sérstakt inngrip þar sem uppsafnaður fituvefur var fjarlægður og ummál veiku handarinnar var minnkað verulega. Magga lá inni í tvo sólarhringa og kom svo reglulega í eftirlit áður en hún gat flogið heim til Íslands á áttunda degi. Eftir aðgerðina tók við bataferli og áframhaldandi meðferð með þrýstiumbúðum sem þarf að endurnýja reglulega.
Teymið vildi fylgjast vel með framvindunni og við komum aftur til Uppsala í desember, febrúar og nú síðast í júní. Þegar þetta er ritað er fimmtu og síðustu heimsókn okkar að ljúka. Allt lítur vel út og teymið telur ekki þörf á frekara eftirliti. Magga er útskrifuð.
Það hefur ekki komið upp ein einasta sýking síðan í nóvember í fyrra. Magga er farin að taka að sér garðyrkjuverkefni á ný og örorka er ekki lengur til umræðu. Hún er á leið aftur út á vinnumarkaðinn.
Lífið er býsna gott! Og það er ástæða til að þakka þeim sem áttu hér hlut að máli. Fyrst og fremst er það Halldór Jónsson læknir sem kom auga á ljósið í myrkrinu og hjálpaði okkur að finna leið sem við vissum ekki að væri til.
Svo eru það Sjúkratryggingar Íslands sem stóðu við bakið á okkur og gerðu meðferðina mögulega. Ekki má gleyma elsku vinkonu okkar Björgu Þórhallsdóttur, hjúkrunarfræðingi og sópransöngkonu sem var með Möggu síðustu dagana Uppsala í nóvember! Síðast en ekki síst viljum við þakka hinu frábæra teymi á Aleris í Uppsala; Håkan Brorson, Anders Liss og Pia Gunnarsson, ásamt Caroline sem sá um samskipti og skipulag. Allt var þetta unnið af mikilli fagmennsku og hlýju.
Vonandi getur þessi stutti pistill nýst fólki sem glímir við sama vandamál. Stundum heyrum við mest um það sem ekki er í lagi. En oft virkar kerfið eins og það á að virka. Þá á líka að segja frá því.
Og þakka fyrir það sem vel er gert.

0 comments on “Þakka ber fyrir það sem vel er gert!”