Ekki hætta að skipuleggja – heldur skipuleggja öðruvísi

Snemma í september hélt rannsóknasetrið SIF (Sustainability Institute and Forum) við Háskólann í Reykjavík tvo viðburði sem mér þóttu eftirminnilegir. Annars vegar var það hádegismálstofa um aðlögun mikilvægra innviða að loftslagsbreytingum og óvissri framtíð. Hins vegar var það vinnustofa þar sem unnið var með nýja nálgun við áætlanagerð fyrir mikilvæga innviði, við mikla óvissu. Ég vil nota tækifærið og þakka Landsvirkjun og Landsneti fyrir að vera dyggir bakhjarlar SIF og Verkfræðingafélaginu fyrir samstarfið sem gerði okkur kleift að fá prófessor Martin Drews frá DTU til Íslands.

Maður lærir alltaf eitthvað nýtt þegar maður hlustar á fræðimenn sem hafa annað sjónahorn en maður hefur sjálfur. Stundum hjálpa þeir manni að setja hugmyndir í nýtt samhengi og sú var raunin með Martin Drews. Í samtölum okkar Martins og í umræðunum á vinnustofunni fór ég að tengja saman ýmsa þræði sem hafa verið að mótast í kollinum á mér. Ég hef verið að fást við verkefnastjórnun, gæðastjórnun, stefnumótandi áætlanagerð, kerfishugsun, óvissustjórnun og sjálfbærni. Þetta eru ekki aðskilin hugmyndakerfi. Mörg þeirra glíma nú um stundir við spurninguna: Hvernig eigum við að taka góðar ákvarðanir þegar framtíðin verður sífellt ófyrirsjáanlegri?

Hér kemur pæling sem hljómar svolítið eins og þversögn. Kannski snýst góð áætlanagerð ekki fyrst og fremst um að spá sem nákvæmast fyrir um framtíðina. Kannski snýst hún ekki síður um að vera undirbúin þegar framtíðin verður önnur en við bjuggumst við?

Þetta gæti hljómað eins og ögrun við við hefðbundna áætlanagerð. Áherslan hefur jafnan verið á að safna upplýsingum og gera greiningar, skilgreina lausn og þróa sem bestar áætlanir til að raungera hana. Auðvitað eigum við að halda þessu áfram og reyna að skilja framtíðina eftir því sem við best getum.

En ég held að við þurfum líka að viðurkenna að það eru takmörk fyrir því hvað við getum vitað um framtíðina. Fyrir fáeinum árum sáu fáir fyrir heimsfaraldur sem lamaði samfélög um allan heim. Fáir sáu fyrir innrás Rússlands í Úkraínu eða stríð Bandaríkjanna og Íran. Fáir gerðu ráð fyrir þeim hraða sem þróun gervigreindar hefur tekið eða þeim breytingum sem nú eiga sér stað í alþjóðaviðskiptum og öryggismálum. Loftslagsbreytingar bæta síðan við nýrri vídd óvissu sem hefur mikil áhrif á ákvarðanir sem teknar eru til komandi áratuga.

Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég hef stundum gripið til VUCA-hugtaksins. Heimur sem einkennist af óstöðugleika, óvissu, flækjustigi og margræðni er ekki undantekning. Hann er smám saman að verða hið nýja eðlilega ástand.

Nú kynni einhver að segja að úr því við getum ekki spáð með vissu fyrir um framtíðina, þá sé einfaldlega best hætta bara að skipuleggja. Ég get auðvitað ekki skrifað undir það. En kannski þurfum við að skipuleggja með öðrum hætti?

Ég held að minni áhersla verði kannski lögð á að reyna að finna eina fullkomna lausn sem á að endast næstu áratugina. Þess í stað verði meiri áhersla á lausnir sem geti tekið breytingum þegar ný þekking verður til og nýjar aðstæður skapast. Þá er ég að tala um lausnir sem eru sveigjanlegar og byggja upp seiglu fremur en að snúast fyrst og fremst um eina framtíðarsviðsmynd.

Þessi nálgun á ekki síst við um stór innviðaverkefni sem eiga að skila virði langt inn í framtíðina. Ég held kannski að áherslan í áætlanagerð muni smám saman færast yfir í það að búa okkur undir margar mögulegar sviðsmyndir.

Þetta er nýstárleg hugsun, en ég hugsa að hún eigi eftir að hafa áhrif á þróun verkefnastjórnunar á næstu árum. Ég mun ábyggilega fjalla meira um þetta í komandi pistlum.

0 comments on “Ekki hætta að skipuleggja – heldur skipuleggja öðruvísi”

Leave a comment