Gott verkefni er ekki endilega rétt fjárfesting

Á Concept ráðstefnunni um verkefnastjórnsýslu í Osló í september töluðu margir fyrirlesarar um þrengri fjárhag ríkja sinna og vaxandi þörf fyrir forgangsröðun opinberra fjárfestinga. Dylan Koenders frá hollenska innviðaráðuneytinu sagði til dæmis að í Hollandi væri reglulega verið að loka eldri brúm vegna þess að ekki væri nægilegt fjármagn til að viðhalda þeim.

Holland er þó ekki sérstaklega skuldsett ríki. Samkvæmt IMF námu skuldir hins opinbera þar um 44% af vergri landsframleiðslu árið 2025. Til samanburðar var hlutfallið um 63% í Þýskalandi, 87% á evrusvæðinu og 137% á Ítalíu. Hlutfallið á Íslandi er 59%. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir því jafnframt að skuldahlutfallið hækki víða á næstu árum.

Þetta er áhyggjuefni. Háar skuldir og vaxandi útgjöld þrengja að svigrúmi til fjárfestinga. En jafnvel ríki sem standa fjárhagslega vel geta ekki ráðist í öll þau verkefni sem þau gjarnan vildu. Þau þurfa að velja og hafna. Hvernig tryggjum við þá að fjármunirnir nýtist sem best?

Þegar ná má 80% ávinnings fyrir bara 40% af kostnaði

Eitt áhugaverðasta erindið flutti Jonas Eliasson, deildarstjóri hjá “Swedish National Transport Administration” og gestaprófessor við Háskólann í Linköping. Hann fjallaði um mikilvægi þess að forgangsraða fjárfestingum út frá samfélagslegum ávinningi, fremur en að líta eingöngu á ágæti einstakra verkefna.

Eliasson benti á að stundum mætti ná 80% af ávinningi umfangsmikillar framkvæmdar fyrir aðeins 40% af kostnaðinum. Þetta er auðvitað ekki algild regla, en hún vekur mikilvæga spurningu. Er skynsamlegt að verja miklum fjármunum til að ná síðustu 20% ávinningsins þegar hægt væri að nota sömu fjármuni til að ráðast í önnur brýn verkefni í samfélaginu?

Hugsum okkur ímyndað dæmi úr íslenskum veruleika. Fjölfarinn fjallvegur liggur yfir heiði þar sem vetraraðstæður geta verið hættulegar. Skafrenningur, snjósöfnun og blindhríð valda því að akstursskilyrði verða oft erfið og loka þarf veginum nokkra daga á vetri. Vegfarendur upplifa óöryggi og óttast að lenda í hættulegum aðstæðum.

Gerum ráð fyrir að athuganir sýni að vandinn sé að mestu bundinn við fáeina afmarkaða staði á heiðinni. Með því að reisa vegskála yfir þessa kafla mætti ná verulegum árangri, bæta öryggi vegfarenda og stórfækka lokunardögum. Kostnaður við þessa lausn væri tiltölulega hóflegur.

En fljótlega fer umræðan að snúast um aðra lausn. Hvers vegna ekki að grafa jarðgöng undir heiðina? Jarðgöng myndu vissulega leysa vandann og jafnvel skila öðrum ávinningi. En þau myndu líka kosta margfalt meira en vegskálarnir. Hvort er þá skynsamlegra?

Svarið er ekki sjálfgefið. Jarðgöng gætu stytt vegalengdir, sparað ferðatíma og aukið öryggi umfram það sem vegskálarnir gera. En þá þarf að meta þann viðbótarávinning og bera hann saman við viðbótarkostnaðinn.

Og ekki síður þarf að spyrja, hvað annað gætum við þá gert fyrir fjármunina sem sparast með ódýrari lausninni? Kannski mætti bæta öryggi á fleiri vegum, endurnýja brýr eða ráðast í aðrar brýnar framkvæmdir. Jafnvel ráðast í jarðgangnagerð til að auka öryggi í samgöngum þar sem enginn annar kostur kemur til greina en jarðgöng. Dæmið er ímyndað, en það sýnir ábendingu sænska prófessorsins í íslensku samhengi og hvers vegna samanburður valkosta og forgangsröðun skipta svo miklu máli.

Að velja milli góðra verkefna

Þetta er einmitt sá vandi sem stjórnvöld standa frammi fyrir. Áskorun þeirra snýst ekki bara um að velja milli góðra og slæmra verkefna, heldur oft að velja á milli margra góðra verkefna sem ekki er hægt að fjármagna öll.

Í drögum að nýjum lögum um fjárfestingar ríkisins er lögð áhersla á vandaðan undirbúning, valkostagreiningu og langtímaáætlanir um fjárfestingar. Með því skapast tækifæri til að skoða einstakar fjárfestingar í stærra samhengi og forgangsraða þeim með markvissari hætti.

En til þess þarf gagnsæi. Almenningur á að geta séð hvaða valkostir voru skoðaðir, hvaða ávinningi þeir áttu að skila og hvers vegna ein framkvæmd var valin umfram aðra. Ekki síður þarf að vera hægt að útskýra hvers vegna tiltekin verkefni eru sett framar öðrum og hvers vegna sumum góðum verkefnum er frestað.

Þegar fjármunir eru takmarkaðir skiptir hver ákvörðun máli. Markmiðið er að skapa sem mest samfélagslegt virði fyrir þá fjármuni sem eru til ráðstöfunar.

Gott verkefni er nefnilega ekki endilega rétt fjárfesting.

Pistillinn er annar í röð pistla um verkefnastjórnsýslu og þær breytingar sem boðaðar eru með frumvarpi til laga um fjárfestingar ríkisins.

Tölur um þjóðarskuldir eru fengnar af heimasíðu IMF og miðast við sömu skilgreiningu skulda. Teikningin er teiknuð af gerfigreind skv. fyrirmælum bloggritara.

0 comments on “Gott verkefni er ekki endilega rétt fjárfesting”

Leave a Reply