Porsche Cayenne eða Hummer?



Orð fá ekki lýst hversu stoltur maður er þegar maður les svona umsagnir!

Að vísu býst ég ekki við að hann hafi leiklistarhæfileikana frá mér. Síðast steig ég á svið í Íslensku óperunni haustið 1989 í Óthello, undir leik (harð) stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Enga leiksigra vann ég, enda ráðinn frekar til að syngja, en ég sá í hendi mér að guð hefði ætlað mér önnur hlutverk í lífinu en þessi hefðbundnu leikhúshlutverk. Ég hef líka alltaf verið fremur tregur í taumi og óráðþægur og líkar ekki vel að taka við fyrirmælum.
En þessi strákormur er sannarlega búinn að koma sér á kortið. Brátt fer hann að bera björg í bú og launa föður sínum áralanga leiðsögn og þjálfun. Þá er bara spurningin Andri minn – ætlarðu að gefa mér Porsche Cayenne eða Hummer?

2 comments on “Porsche Cayenne eða Hummer?

  1. Unknown's avatar

    Til hamingju með soninn 😉 Og Helgi – ég trúi ekki að þú sért svona yfirborðskenndur! Heldurðu að Hummer og Ceyenne séu til í díselútgáfum?Átakshelgin er að bresta á…

    Like

  2. Unknown's avatar

    ég hélt það…… nú ef ekki þá verð ég kannski bara að sætta mig við landcruiser…..

    Like

Leave a reply to Lína Cancel reply